Ávinningur

Verkefnið byggir á því að það sé aðgengilegra fyrir viðskiptavini að taka mat með sér heim af veitingastöðum. Matur sem ekki klárast þegar farið er út að borða endar oftar en ekki í ruslinu á veitingastöðum. Til að minnka matarsóun hvetja veitingastaðir viðskiptavini sína til þess að taka leifarnar með sér heim og njóta þeirra seinna.

Beinn ávinningur af verkefninu:

  • Minni matarsóun
  • Öll afgangs olía frá veitingastöðum fer í lífdíselframleiðslu
  • Allur lífrænn úrgangur frá veitingastöðum fer í jarðgerð

 

Ávinningur fyrir veitingastaði er sem dæmi:

  • Stuðningur frá Vistorku í gegnum verkefnið
  • Leyfi til þess að nota merki verkefnisins í markaðsefni.
  • Aðstoð við að fylgja settum lögum um urðun lífræns úrgangs (sjá ný lög um lífrænan úrgang 1. jan 2023)
  • Frí markaðssetning á miðlum verkefnisins (vefsíða, Facebook og Instagram)
  • Nafn veitingastaðarins á lista yfir veitingastaði á vef verkefnisins
  • Verkefnið styrkir umhverfisstefnu veitingarstaðar ef til er / getur verið upphafspunktur til þess að gera umhverfisstefnu. Verkefnið styður t.d. tvö af heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna